föstudagur, mars 19, 2004

Lítið heyrst frá okkur undanfarið, enda búið að vera nóg að gera. Dröfn og Arnar eru í heimsókn og er óhætt að segja að það er búið að vera rosa stuð hjá okkur. Fórum t.d. í gær á skólabarinn hjá Bjössa og þegar hann lokaði þá ákváðum við að skella okkur niður í bæ þar sem að við vissum að það væri Happy hour á Moose! Þar var mikið af fólki í sömu hugleiðingum. Við enduðum svo í seven eleven í pylsumaraþoni og fórum svo heim. Þá vorum við ekki enn til í að fara að sofa þannig að við ákváðum að fara að spila!! Þegar sólin var að koma upp þá ákváðum við að það væri kannski ekki vitlaust að fara að halla sér!!:)

Dagurinn í dag er búinn að vera heldur rólegur, en núna erum við á leiðinni á Eastern corner sem er rosa góður tælenskur staður. Svo er aldrei að vita nema að það verði gert eitthvað skemmtilegt eftir það..........



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home