fimmtudagur, mars 24, 2005

Engin háfleyg markmið......

Jæja, núna lét ég verða að því sem ég hef ætlað mér í ágætis tíma. Ég ákvað að koma mér í trimmgallann og af stað!! Kom sjálfri mér á óvart að deyja ekki á leiðinni........það sem hélt mér gangandi(hlaupandi) var sennilega það að ég ætti nú að drífa nokkra kílómetra víst sumir fóru 42 km um daginn!
Allavega, þetta var hressandi og er stefnan að gera meira af þessu........hummhumm. Gott að fá ferskt loft, styrkja sig og gleyma sér smá. Svo væri ekki verra að slípa aðeins af í leiðinni:) Semsagt, ég er ekki á leiðinni í maraþon!

1 Comments:

Blogger Ásta said...

Dugleg! Það var líka geggjað veður í gær! Við fórum bara út að labba og éta ís:) hehe

10:58 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home