föstudagur, september 27, 2002

Tíminn flýgur áfram, ég hef alveg gleymt að láta í mér heyra. Þessa stundina er ég að gera program fyrir verkefnið mitt sem ég á að skila á þriðjudaginn. Það gengur ágætlega, fyrsta skipti sem ég geri svona lagað. Um helgina er Klakamótið í Árósum (íslensk áhugamannalið í fótbolta sem staðsett eru víðsvegar á Norðurlöndunum, aðallega í Danmörku þó- semsagt keppni og djamm). Þar sem Klakamótið er ekki fyrir konur á allan hátt þá ætla ég að bregða mér í heimsókn til Ástu í Odense og Ásdís ætlar líka að koma frá Kaupmannahöfn, það verður eflaust voða gaman hjá okkur:) Ég ætla þó að vera komin til Árósa uppúr hádegi á sunnudaginn svo að ég geti séð úrslitaleikina á mótinu, þar sem Hekla (Árósaliðið) verður ábyggilega í toppslagnum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home