sunnudagur, febrúar 05, 2006

Vika 39
Leghálsinn gæti verið farinn að mýkjast, styttast og þannig að undirbúa sig fyrir að opnast. Slímtappinn gæti einnig farið hvenær sem er en það getur verið merki um að fæðingin verði á næstu dögum en jafnvel fyrr. Þú gætir fundið meira fyrir samdráttum í leginu (kúlan harðnar) en einnig gætir þú fundið fyrirvaraverki. Samdrættir lýsa sér þannig að kúlan verður hörð án þess að konan verði vör við verki. Fyrirvaraverkir eru samdrættir ásamt verkjum sem koma óreglulega og standa oft stutt yfir. Verkirnir eru ekki óbærilegir en óþægilegir. Fyrirvaraverkir hætta oft við hvíld. Það er talið að fyrirvaraverkir geri gagn því þeir undirbúa leghálsinn með því að mýkja hann. Fyrirvaraverkir eru algengari hjá konum sem fætt hafa áður. Byrjandi fæðing lýsir sér með samdráttum ásamt verkjum, oft kallað hríðir eða fæðingarhríðir. Hríðirnar koma reglulega, lagast ekki í hvíld og aukast smám saman, styttra verður á milli þeirra og hver hríð varir lengur. Legvatn getur farið í byrjun fæðingar án þess að hríðir komi strax í kjölfarið en algengara er að legvatn fari í lok útvíkkunartímabils.

Kynfæri barnsins eru óvenju stór en það er vegna áhrifa frá þeim hormónum sem þú framleiðir. Þetta jafnar sig nokkrum dögum eftir fæðingu. Nú hægir aðeins á þyngdaraukningu barnsins og undirbúningur fyrir fæðinguna hefst af fullum krafti. Barnið vegur nú um 3.2 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 34 sm.

(tekið af www.ljosmodir.is)

7 Comments:

Blogger Ásta said...

Af hverju býrðu ekki í Odense? Ég er einmitt í praktík á fæðingadeild....ég gæti staðið við dyrnar og fengið fréttirnar fyrst! (Geri fastlega ráð fyrir að nærveru minnar væri ekki óskað neitt nær! hehehehe....)

10:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Leghálsastytting og slímtappabrestur og hvað það var nú ekki talið upp þarna... er þetta ekki svona aðeins of miklar upplýsingar fyrir okkur strákana... mér finnst að svona lagað ætti bara að vera hluti af dulúð fæðingarinnar... og jafnvel bara fyrir fæðingarlækna og ljósmæður, en ekki fyrir okkur amatörana ;o)

5:01 e.h.  
Blogger herborg said...

hehehe.........já af hverju ekki í Odense...well!

Þið viðkvæmu sálirnar verðið að leiða þetta hjá ykkur, ég beið eftir að einhver myndi segja að þetta væri "to much information!"
hehe:)

5:42 e.h.  
Blogger Ásta said...

Hahaha, ég var einmitt byrjuð að skrifa hvernig ég var að læra að sauma í svinahjörtu til æfa mig að æfa mig í að sauma konur saman eftir að þær rifna í fæðingu....en ákvað að það væru kannski of margar upplýsingar fyrir suma:-) Hehehe, nú fáiði að heyra það samt!:)

9:15 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá allt að fara að bresta á bara!!
Ásdís

2:37 f.h.  
Blogger herborg said...

Ásta, þetta var " toooooo much information"!!!!!!!!!!!!!!! heheheheheh

8:01 e.h.  
Blogger Ásta said...

Bwahahahaha!!

8:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home