Ég var víst klukkuð:)
5 staðreyndir um mig.
1. Ég er rosalega myrkfælin. Ég hef séð framliðna og mér finnst ég finna þegar einhver er nálægt mér, hef hinsvegar ekki séð neitt í þónokkurn tíma. Held að ég hafi náð að loka á það. En já, finn fyrir einhverju og finn oft lykt. Ef ég þekki lyktina og veit hver er á ferð, þá er það bara notalegt:)
2. Ég ath alltaf áður en ég fer út hvort það sé ekki slökkt á eldavélinni, þó svo að ég hafi ekki verið að nota hana rétt áður.
3. Mér finnst ótrúlega gaman að elda og halda boð. Hlakka til þegar Flókagatan verður tilbúin í það og þegar ég er komin með lyst á matnum mínum aftur!
4. MIg langar rosalega að kunna að sauma og prjóna og stefni á að gera eitthvað í því á næstunni.
5. Ég var ropmeistari Breiðholtsskóla 1995. Ég og 2 strákar tóku þátt og ég rústaði þessu. Mikil mistök hjá þeim að vera að fá sér kókosbollu með kókinu!Ég fattaði á sviðinu að þetta væri nú miður
kvenlegt og hef ekki ropað á almannafæri síðan!:) En hvað gerði maður ekki fyrir smá athygli á sínum tíma!