sunnudagur, desember 18, 2005

Að lokum er það Ásta:)

1. Kynntist þér í MS í 3. bekk. Þú átt afmæli sama dag og ég, en árinu yngri! Við erum svolítið líkar í okkur:) Rosalega dugleg, samviskusöm og skemmtileg......eins og ég...heheheh!
2. Angel- við stóðum svo sannarlega með Íslandi í Parken 2001, þrátt fyrir þetta vonlausa lag!:)
3. En stor fadöl tak!
4. Í MS. Mér dettur fyrst í hug atriðið með svaraheftið í stærðfræði!! hehehe
5. Þú ert (bóka)ormur
6. Hvernig er að vera fædd 1980?? Svona í alvöru talað?? hehe
7. Sumt gerir maður af góðseminni einni..........maður lætur sig hafa það!!! hehehehe.........muahahhaa

Jæja, hér kemur þetta:

Arndís:

1. Brosmild, með smitandi hlátur, flott týpa-alltaf rosa smart! Ekki skemmir að þú sért klár að sauma, svo að þú getur galdrað fram flottar flíkur. Bekkjarsystir mín öll árin í MS og núna í master í verkfræði:)
2. Barbie girl, hehehe.........við vorum góðar í aukahlutverkunum!!
3. Subway
4. Ég kynntist þér nú ekki alveg strax í MS þar sem að þú varst í Mosó-klíkunni og ég í Breiðholts, en svona það fyrsta sem mér dettur í hug er árshátíðin í 1. bekk, þegar þú varst með gaffalsarmbandið, mér fannst það ýkt cool:)
5. Eitthvað sem gefur frá sér fyndin hljóð........hmmm.......hýena??:) hehe
6. Af hverju vatnafræði? Þú varst byrjuð að tala um það í MS?? Ég veit frekar boring spurning! hehe...Beygðir þú gaffalinn sjálf um árið??
7. Okkur finnst fátt skemmtilegra en að elda góðan mat og njóta hans, en hvernig stendur á því að matarklúbburinn okkar er alltaf með take-away??

Annska

1. Óbilandi áhugi á stjarneðlisfræði! Dugleg og hress stelpa. Bekkjarsystir öll árin í MS. Það er bara til ein Annska held ég!
2. Það er lagið úr nýjasta tækni og vísindi með Kraftwerk:)
3. Kók
4. Bara fyrsta daginn í MS, þú varst svona algjör sveitastelpa, með krullað ljóst hár og saklaust yfirbragð! Og svo bolurinn sem þú varst í á busaballinu í MS sem stóð á: "Don´t call me a babe", mér fannst hann fyndinn! hehe
5. Erfitt að líkja fólki við dýr, en þú ert bara termíti, vinnur skipulega! hehe
6. Hvað á að gera eftir doktorinn?? Ertu væntanleg heim þá??
7. Til hvers að labba yfir Fossvogsdalinn þegar maður getur verið sóttur??

Kjartan

1. Eiginmaður Kristínar sem er ein af mínum bestu vinkonum. Hress og með góðan húmor. Finnst bjór góður en ákvaðst samt að neita þér um hann í smá tíma:)
2. Nasty boy
3. Bjór
4. Fyrsta ljósa minningin er áður en ég hitti þig, hehe.... Þegar Kristín sagði mér frá þér og ég var svo forvitin að ég gróf upp síðuna þína á netinu til að getað séð myndir!! heheeh..... En já, svo man ég eftir að við fórum í pool í fyrsta skipti sem ég hitti þig, vann ég ekki?? heheh
5. Dýr, þessi er erfið! Þú ert bjarndýr:)
6. Hélstu virkilega að Kristín myndi ekki mæta í kirkjuna?? Þú sagðir alltaf að það væri það eina sem þú hefðir áhyggjur af!:) hehehe
7. Hvenær er tímabært að mæta heim til fólks þegar það á brúðkaupsafmæli??

Maja

1. Ein af mínum bestu vinkonum:) Með nákvæmlega sama húmor og ég og oft erum við að hugsa nákvæmlega sama hlutinn, mjög fyndið. Ótrúlega ljúf og þægileg manneskja, og þess vegna held ég að þú sért frábær hjúkka:) Get sagt svo mikið um þig, en ætla að láta þetta duga.
2. Lag, eitt lag........Bless, bless, bless kemur þar mjög sterkt inn! heheheh og þau eru fleiri... Stand með REM.....
3. Súkkulaði.
4. Ég man eftir þér í Breiðholtsskóla þegar við vorum ekki saman í bekk, þar sem að þú áttir nú líka heima í næstu götu. Við kynntumst mjög fljótlega eftir að við byrjuðum í 8-R, vorum mjög mikið að hanga heima hjá mér alltaf, og í Mjóddinni. Man þegar þú komst fyrst heim til mín og ég var nýbúin að taka til í herberginu mínu, og þú hélst að það væri alltaf svona snyrtilegt hjá mér........ hehehehhe!
5. Dýr, þú ert allavega ekki mús.....En við höfum þó séð konu sem var eins og mús!
6. Ég spyr þig nú sennilega að flestu sem mér dettur í hug. Langar þig ekki að flytja í 105??
7. Frumbyggjarnir, viðrinið, albínóinn, hamborgararassarnir.......hehehe!! Herborg (Maja)......nei ó, þú ert hérna...;) hehehe Oddsskarð/Oddskarð...... Ert þú vinkona þessarar sem hringdi áðan?? heheh..........Sléttu úr honum......

fimmtudagur, desember 15, 2005

Það vinsælasta á bloggunum í dag er þetta:

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.

Þetta hafði Diljá FRÆNKA mín að segja um mig:

HERBORG:
1. arkitekt, frænka mín...samt ekki, svartur húmor, bréfaskriftir um KObba hálstognaða, STEINA; DÝRA; JÚRTA????,
2. innskot: Við eigum samleið með Siggu og Grétari:)
3. hangikjöt með ölli (extra karföflur)
4. man ekki hvenær ég hitti þig fyrst:) en ég man eftir leikritunum í ganginum á Vesturbrún, við æfðum í 3 tíma og svo nennti enginn að koma, við þurftum að draga þau. Ég skildi þau ekki..geri það nú kannski núna. Þetta var svo langt leikrit.Man eftir Katalgili, ég var að væla af því ég fékk ekki eins svala og þú og ásrún.
5. Dýr? Hvaða dýr er forvitið? Páfagaukur...
6. Hvað á barnið að heita??

Og þetta hafði Kjartan að segja um mig:

Herborg

1. Alltaf í stuði og til í djammið
2. Disco 2000 með Pulp
3. Blár tópas
4. Sumarbústaður á Þingvöllum.... eitthvað sem við þyrftum að gera aftur :)
5. Gíraffi
6. Hvaða skemmtilegu sögur átt þú eftir að segja mér af Kristínu...
7. "Fimmtudaginn 7. október - Þennan dag árið 1827 fæddist fyrsti örvhenti dvergurinn sem jafnframt var samkynhneigður"

fimmtudagur, desember 08, 2005

Ákvað að herma eftir Kjartani og henda inn niðurtalningu í komu krílisins:)