þriðjudagur, janúar 31, 2006

37-38 vikur

Það er ekki hægt að segja annað en að bumban sé orðin ansi myndarleg:) Núna styttist heldur betur í þetta. Ég vann seinasta vinnudaginn í bili í dag, núna á að reyna að slappa af og undirbúa komu barnsins;) Tilhlökkunin er alltaf meiri og meiri;)












miðvikudagur, janúar 25, 2006

Barnið heldur áfram að þyngjast. Litlu lungun eru að verða tilbúin til að starfa. Barnið hefur nú þétt grip með höndunum og kyngir um 750 ml af legvatni á dag. Það vegur nú um 2,7 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 32,5 sm.

fimmtudagur, janúar 19, 2006


Tveir góðir eftir að hafa verið á jólaballi með ömmu sinni. Bergur systursonur minn til vinstri, Ingvar bróðursonur minn til hægri:)

Bergur setur upp englasvipinn á meðan Ingvar kjamsar nammi:)

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Ásta hafði þetta um mig að segja á blogginu sínu:

Herborg:

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.Vinkona mín arkitektinn!! Þú átt afmæli sama dag og ég, og það liggur við að ég fari að trúa þessum stjörnuspám, því við erum svo líkar með margt! Þú ert skemmtileg og með mikinn húmor, og alltaf til í allt. Þú hefur gaman af að elda og sérstaklega að prófa nýjar uppskriftir sem heita vafasömum nöfnum:) Þú ert mjög original og með skemmtilegan fatasmekk. Þú ert ekki mikið fyrir væmni og færð útbrot þegar maður fer á trúnó með þér!!!:Þ

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.Allt sem hefur með Eurovision að gera minnir mig á þig, því þú ert vís með að vera búin að læra textana utan að, hahaha.

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.Bjór að sjálfsögðu! Kemur ekki annað til greina.

4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.Þegar ég byrjaði í 3.X í MS, þá komstu 2 dögum of seint af því að þú hafðir verið á Benidorm eða eitthvað álíka með Bjössa og Helga og fleirum. Ég man að þú varst eins og negri! Ég var mjög öfundsjúk út í sólbrúnkuna;) Mér fannst þú svolítil strákastelpa, man ég, af því að þú varst svo mikið með Helga og strákunum.

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.Ég skil ekki þessa dýraspurningu, ég er svo mikið bæjarbarn, þekki bara gæludýr:) Þú ert alla veganna dýr sem er forvitið en samt dularfullt:)

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.Hvenær er bryllup? (svo skemmtileg þessi pressa, fyrst bumban er komin! hehehe)

7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig."Neeeeeeeeeerd""Hver er ólétt núna???!!""Ef við töpum þá þykjumst við bara vera Norðmenn! -Nei, damn!!!" haha

Gaman að þessu:)

sunnudagur, janúar 01, 2006


33 vikur (+1 dagur)

Bumban er orðin ansi myndarleg:) Mikið fjör hjá barninu alltaf, mikið verið að hreyfa sig. Lítill stuðbolti á ferð.

Við erum orðin voða spennt enda ekki langt í þetta hjá okkur. Núna þurfum við bara að fara að innrétta barnaherbergið og gera allt klárt:)

Gleðilegt ár!!