Danmörk í dag, Ísland á morgun. Svona er maður global:)
Gleðileg jól öllsömul!
Ég er nú alltaf til í að prófa eitthvað nýtt:)
Tölvan mín var ekki vinur minn í gær og í nótt. Þegar ég ætlaði að geyma plakötin mín sem pdf kom alltaf skemmd í myndina. Ég tók þá ákvörðun klukkan rúmlega 4 að prenta hjá Vesterkopi sem er helmingi dýrari en Frederiksbjergkopicenter. Ég sá fyrir mér megakatastrofu ef það væri eitthvað meira að skjalinu mínu, og treysti mönnunum í Vesterkopi frekar til að bjarga mér. Og allt er gott sem endar vel, var komin með plakötin í hendurnar rét eftir hádegi. Ég þurfti því að sleppa því að fara í klippingu, eins og var planað og afboða mig í 110 skiptið í heimsókn til Helgu, Halla og Þórhildar.......það tekst að lokum!
Jæja, þá er þetta alveg að verða búið og allt skv. áætlun:) Vonast til að vera bara búin með þetta fyrir kvöldmat, spurning hvort það gangi eftir.............það sem er svolítið óþolandi við þetta fag er að það er alltaf hægt að gera betur, það er aldrei neitt "búið" þannig séð. En maður verður að læra að segja stop!!
Annar í aðventu